sunnudagur, apríl 30, 2006

Hvar eru flær allar..?

Það er spurning sem ég ætla að svara

* Síðustu dagana hefur María verið að ganga um hafnarfjarðarbæjinn. Hún stofnaði gönguklúbb karateunnenda síðastliðinn mánudag og hefur það gengið bærilega. Þó svo að það er ekki jafnt og engin þá er hún með sínar hugmyndir sem munu efla klúbbinn. Ein hugmyndin er að nota sumarið í Hraunbyrgi og sýna túristum fallega bæjinn okkar. Ef ég þekki Maríu rétt þá hefur hún eflaust eitthvað meira í pokahorninu.

* Gamlar töskur, gömul vesti, gömul veski, gamalt hitt og þetta er það sem skýst fyrst upp í hugann minn þegar ég heyri nafnið Dagný. Hún hefur fengið grænt ljós frá ömmu sinni og notar nú allar frístundir sínar upp á háalofti hjá henni, gramsandi í kassana. Þetta grams er samt ekki tilgangslaust og hefur dagný fundið mörg fögur skópör, nokkur veski og eitt gífurlega flott blómavesti sem samkvæmt móður hennar passar mjög vel við hvíta *puffpuff* skyrtu. Markmið Dagnýjar er að ná að ganga á háhæluðum skóm í hálfan dag án þess að þjást. Við óskum henni góðs gengis.

* Hún Stína fékk samt þvílika hugljómun um daginn, hún ætlar að bjóða sig fram sem þjálfara m.fl kk í handbolta. Það er allt tilbúið og hefur hún sínar hugmyndir um hvernig skal koma körlunum upp á hærra plan t.d. breyta hvíta litnum í fh búningnum í bleikann, þar sem bleikur hefur truflandi áhrif. Kristín er hörku kvennskörungur og hún hefur allann minn stuðning .. GÆS .. get ætla skal!!

* Maaggaaa... hvað getur maður sagt. Hún er í ruglinu greiið, veit hvorki upp né niður hvað gera skal við tímann sinn í þessum prófum. "Of mikill tími, of fá próf".. það ættu allir að kannast við þetta. Í sumar finnið þið Margréti í helstu sundlaugar höfuðborgasvæðisins. Hún fann köllun sína um daginn þegar hún labbaði framhjá suðurbæjarlaug. Þrífa sundlaugar, það er náttúrulega ekkert betra en að sjá skítuga sundlaug verða að glansandi hreinni laug. Margrét ætlar sko að láta taka eftir sér í sumar, hún ætlar að verða uppgötvuð.. Gangi þér allt í haginn.

* Ásrún eins og þið ættuð að vita skráði sig í þjóðdansfélag íslands daginn eftir Peysufatadaginn. Í sumar mun hún fara á alheimsmót þjóðdansa í Honululu í Japan og hlakkar henni mjög mikið til. Því miður er hún í stökustu vandræðum með að finna nýjan þjóðbúning þar sem það eru ekki margar búðir með bleikann íslenskan búning. Næstu dagana verður Ásrún í einkakennslu í þjóðbúningasaumun og ef allt gengur upp ætti hún að vera komin með einn bleikann búning fyrir águst. Ég sendi þér allar mínar andlegu hugarsaumastrauma...

* Moi, ich, me, jeg, ég Elna Albrechtsen hef bara verið að þjálfa heilann fyrir vorprófin. Í gær var skrifuð ritgerð og ein skýrsla send til kennara. Í sumar mun ég vera að mestu leiti á Úlfljótsvatni allaveganna með Katrínu .. kannski hin 50% líka. Fótboltinn mun vera spilaður á úsu og hlaupin tekin þar líka. Ég þarf að redda mér fríi 9.júli því þá er úrslitaleikurinn í HM.

Annars var það ekki meira .. mér leiðist og er búin að lesa það sem ég nenni ... adios!
Kv. Elna

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Peysufatadagurinn hjá Ásrúnu

Tölvan hennar Ásrúnar er með stæla svo að hér kemur blogg frá henni:

Já stúlkur það er ekki á hverjum degi sem að maður fer í lögreglufylgd niður Laugarveginn!!!!!!!

En ég fékk einmitt lögreglufylgd í morgun niður Laugarveginn ásamt sirka 2- 300 öðrum fjórðubekkingum úr Verzlunarskóla Ísland en það var einmitt í tilefni af peysufatardeginum.

Þetta var sko alveg frábær dagur í flesta staði, dagurinn byrjaði niðri ráðhúsi þar sem að Siv Friðleifs og einhver kall tók á móti okkur með dýrindis morgunverði klukkan átta í morgun. Fengum við okkur smá gott í goggin og tókum svo nokkur dansspor. Klukkan rúmlega hálf 10 lá leið okkar í Verzlunarskólann þar sem að við fengum okkur sæti í Bláa salnum og hlustuðum við á ræðu frá Sölva skólastjóra og skemmtiatriði frá tveimur strákum úr fjórðabekk og það var eitt lag sem var búið að færa yfir á íslensku. En það var lagið I'm a suvivor með DEstiny's child en viðlagið hljómaði svona:

Ég er í versló
ég er á peysó
ég fíla fjórðó
það er ekki leyndó

svo fengum við að vita meira um peysufötin og þá aðallega upphluti og ég komst að því að ég var í 20. aldar upphlut sem að hún langamma mín saumaði.

Eftir versló fórum við á hlemm þar sem að lögreglan tók á móti okkur í fallegum leðurgöllum og mótórhjólum. og við röltum á eftir þeim niður Laugarveginn, þegar að niður hann var komið skelltum við okkur í dans á Ingólfstorgi.
Þar sem að stelpur voru í meirihluta þá dansaði ég við stelpu, ég var alveg frekar sátt sko að lenda ekki með einhverjum algjörum lúðum sem eru sveittari í höndunum en allt hehe.

Þegar að við vorum búin að dansa skottís og einhvern annan dans þá ákváðum við bara að drífa okkur fótgangandi í átt að Háskóla Íslands þar sem að það var hópmyndataka í tröppunum. Myndatakan var fín, var með frosið bros í 10-15 mín hehe, ég fæ eintak af þessari mynd fljótlega ;)

Þegar að myndatakan var búin komu rúturnar að sækja okkur og bílstjórar þeirra óku okkur uppí Perlu, þar sem að beið okkar þessi líka sjúklega góði hádegismatur mmmmmm.
Mig á ábyggilega eftir að dreyma hann í nótt hehe. En við fengum geðveika sveppasúpu eiginlega um leið og við komum, biðum í smástund eftir þessu líka mjög svo ljúffenga kjúkling, þegar að við vorum búin að borða hann þá kom þessi yndislegi eftirréttur en maður var nú eiginlega sprungin eftir hinn matinn, en það stoppaði okkur ekki í að borða þennan gómsæta eftirrétt ó my god ég elska svona eftirrétti við fengum ís í súkkulaði skel og svo var súkkulaði kaka við hliðiná sem að var samt eiginlega eins og búðingur svo voru jarðaber og vínber með mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm.

þegar matnum var lokið fengum við afhentar fjórðubekkjarbókina, hún var rosalega flott nafnið skrifað í gulli á forsíðuna, Ásrún Jóhannesdóttir undir Verzlunarskóla Íslands logoinu. En þegar að inní bókina var kíkt og skoðuð myndin af Ásrúnu Jóhannesdóttur breyttist brosið í skeifu þar sem að myndin var tekin hálfum mánuði eftir aðgerðina mína var ég þvílíkt bólgin og svo var qoutið mitt við hliðiná... "ohh mig langar svo í ís" þetta kemur sko út eins og ég sé einhver offitu sjúklingur. En jæja ég verð bara að jafna mig á því.

En þetta var svo æðislegt við sátum í perlunni frá hálf 2 til 4 og fórum einn og hálfan hring í perlunni. Vitiði hvað ég er að tala um? gólfið í perlunni snýst nefnilega þannig að við fengum útsýni úr öllum áttum.

En já núna er ball í kvöld þar sem að bara fjórði bekkur verður. Ballið er haldið á Brodway og byrjar klukkan 10 og er búið klukkan 1. Ég fer núna rétt fyrir 9 eða þegar ég er búin að borða og gera mig ready til hennar Þórdísar bekkjarsystur minnar í fyrirpartý og fer svo á ballið.

Ég vildi bara segja ykkur frá þessum frábæra degi og ef að þú nenntir að lesa þetta að þá ertu best/ur allright

Kv. Frá Ásrúnu sem komst ekki inná sitt blogg

ps. læt fylgja með hérna mynd til dæmis um hvernig ég leit út í dag ;)

sunnudagur, apríl 23, 2006

..

Ég fann kuldann stingast í mig þegar ég vaknaði í morgun. Sængin lá krumpuð á gólfinu og ofninn ískaldur því ég hafði lúðast til að slökkva á honum tvem kvöldum áður. Mamma stóð í dyragættina og horfði á mig "Eva er komin með morgunmatinn, komdu þér á lappir stelpur" sagði hún, snéri sér við og labbaði niður. Ef það er eitthvað sem fer í mig þá er það þegar heimilisfólkið skilur eftir opnar dyrnar hjá mér.
Eva var búin að leggja á borðið dýrindis brauð og álegg. Hún stóð við vaskinn og var að hita vatn fyrir te þegar ég steig inn í eldhúsið. "Mikið voðalega er hún myndarleg þessa dagana" hugsaði ég með mér og rifjaði upp daginn sem ég kom heim frá Ameríku. Ég hafði haft verulegar áhyggjur af því hvernig herbergið liti út þar sem ég ákvað að klára að pakka 10 min áður en ég fór út úr húsinu og mundi ekki hvernig ég hafði skilið eftir herbergið, bara að það var örruglega í tómu tjóni. Herbergið var fagurt, öll fötin brotin saman ofan í skúffu og búið að búa um rúmið. "Það var mikið að þú vaknar" sagði Eva. Ég brosti innra með mér og sast við eldhúsborðið, tilhlökkunin að fá að borða var skringilega mikið.


..... HAHA ég ætla að skrifa ævisögu og í henni verður allt um mínar daglegu hreyfingar!

Ég hef klárað fyrirlesturinn um queen og er núna búin að minnka heimavinnuna mína um helling!

ADIOS

föstudagur, apríl 21, 2006

Ég sló Stein Af því að mamma sagði mér að gera það

Fékk þetta á www.blog.central.is/grooby frá sigrúnu ;) ...vúhúh

ENdilega tjekkið á þessu


Veldu mánuðinn sem þú fæddist
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá

Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskifting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í nafninu þínu

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum

fimmtudagur, apríl 13, 2006

vaaa

Thad er aedi herna, 30 gradur og flott... Vid erum svoooo uppteknar a daginn ad eg kemst varla yfir thad

welll... a morgun fer eg ad versla .. vildi bara adeins tja mig .. adios

mánudagur, apríl 10, 2006

Er eg kem heim i buðardal...

HOME SWEET HOME!!!!!

Fagnaði heimkomuna með því að fara í skólann og sofa þar..! Hitti þó Kristínu, Sigrúnu, Siggu, Lilju, Dagnýju og alla hina sem löbbuðu framhjá...

en já .. ég er komin heim úr þessari mögnuðu ferð..


* Er Ítalinn allveg hættur að tjá sig? ;)

Miami eftir ... 7 tima

OK.. það er brjálaður *Vil ekki segja landheitið* að stalka þessa síðu :D haha
• Eigum við að rita öll blogg á ensku bara fyrir þennan mann?
• Eigum við að kommenta allt á ensku bara fyrir þennan mann?
NEI..

Þessi helgi var ÆÐI... vá ...
Föstudagur:
• Chillað með systu
• Snakk, nammi og 10 things I hate about you
• Kósy upp í skátaheimili
• horft á ... Cool eitthvað með John Travolta
• Fíla hann ekki
• Fór heim og sofnaði

Laugardagur
• Vaknaði
• Fór út að skokka
• Fór í sturtu
• Brunaði upp í skátaheimilið
• Vakti fólkið
• Tóti, ég og Katrín skutluðumst í Bakarí
• Borðuðum morgunmat með allt pakkið
• Deildum um það hvað átti að gera
• Skautar vs´ Köfun
• Skautar it was .. ótrúlega gaman
• Eftir skauta var farið í Kópavoginn í sund
• ÞÆGINDI
• Lágum lengi í hrúgu þarna ofan í laug
• Skutlast heim
• Skildust leiðir okkar
• Við hittumst þó aftur þegar við fórum í útilegu í Kaldársel
• Ég, Katrín, Dagný, Smái og Ástan
• Kaldarsel var skemmtilegt
• Spiluðum með HUGES spil
• Kleppari og Pakk... ég og kata RÚSTUÐUM pakkið
• Svo fór ég heim
• hitt fólkið gerði eitthvað magna
• það er ekki mitt að segja frá því :D

Sunnudagur
• Keppti
• og meira ;)
• Fór á Ísöld 2 með Dagnýju og fleiri ..
• ÓGeðslegA fyndin mynd

En ég nenni ekki meira, ég er eins og barn á jólunum ... spennan magnast... aaahhh

okey ... :D

ég á örruglega eftir að tjá mig þar sem það er netcafé á hótelinu ..

ADIOS :D

föstudagur, apríl 07, 2006

MYNDIR!

Jahá stúlkur, þið sem voruð að ybba ykkur af því að ég er lengi að setja myndir á netið. Toppið þetta.
Myndirnar úr saumó eru komnar inn. Ég nenni ekki að setja slóðina, farið bara HINGAÐ

fimmtudagur, apríl 06, 2006

ATH

Ef þið stelpur hafið áhuga á að horfa á "Gettu Betur" og/eða hjálpa til við að elda saman .. þá endilega mæta klukkan 20:00 en þá byrjar þessi allskemmtilegi þáttir..

Kveðja The Aðal

mánudagur, apríl 03, 2006

Snow is falling, all around me

no shit...

Það er brjálaður snjór í gangi!!!
Jæja á morgun ætla ég og Dagný að skella okkur á hið blessaða grímuball MR með Maríu og Gerði. Þetta verður vonandi svipað og Kvennógrímuballið .. nær örruglega ekki að toppa kvennóball .. kemur í ljós

Það er vika í Miami!!! 7 dagar :D örruglega hundleiðinlegt að það komi alltaf einhver svona niðurtalning í mínum bloggum but i dont give a shit ;) aaahhh það verður brjálað gaman :D

Annars var ég að spá hvort ykkur einstökum langaði að hittast heima hjá mér á fimmtudaginn og gera tacos saman og e-ð álíka ;) um svona 8:30 .. ég sendi ykkur sms ef þið verðið latar að svara

okey þá er það komið .. adios amigos ;)

sunnudagur, apríl 02, 2006

Orðuband = ættkvísl náttfiðrilda

Jæja stúlkur, er ekki Elna næst í röðinni með saumó?

Ef já, fer þá ekki að koma að því?
Ef nei, sú sem er næst vinsamlegast gefi sig fram...

Svo bráðvantar skoðanakönnun!