miðvikudagur, mars 29, 2006

sma upptalning til ad drepa leidindi

Þær sem kunna á þetta meiga fara að klára þessar persónuupplýsingar og
gullkornin, allaveganna þannig það sé eitthvað að skoða hérna ;)

Ég er svo dugleg, alltaf að bæta inn myndum! Þarf bara að fara að læra að
setja þær inn á þessa síðu (obboslega leiðinlegt að fara alltaf inn á
myndasíðuna.. eða hvað? er það bara ég sem finnst það leiðindi?)

www.elna.shutterfly.com

*Nýtt*
•Félagsútilega 1
•Félagsútilega 2
•Sumarbústaðarferð einstakra

Gamla og góða
•Grímuballið
•Mátun á grímuballsföt
•Ýmislegar myndir
•Manchesterferðin með pabba
•Fiskifyrirlesturinn

Það er að styttast í allt... 39 dagar í prófin... 12 dagar í
miami... 9 dagar í páskafrí

Próftaflan er líka komin! 5.Mai - 17.Mai !! Einkunnirnar
verða svo afhendar 23.mai :S...

5. íslenska
6-7
8. efnafræði
9.
10. jarðfræði
11. rokksaga
12. þýska
13-14.
15. stærðfræði
16.
17. Enska

18.. afmælið hennar Kristínar .. stelpan rétt sleppur :D


jæja þetta var ágæt tímaeyðsla! Nú er ég farin að borða og svo
farin á fund... lúðinn kveður

mánudagur, mars 27, 2006

Trylltir krakkar og skemmtilegheit

Vestmannaeyjarnar eru sérstakar en þó þokkalega góður staður til að vera með félagsútilegu.

Við lögðum af stað á föstudeginum frá hraunbyrgi. Ég verð að segja að Dagný er svakaleg. Stelpan mætti með 60´greiðslu útaf því að henni leiddist, allveg stókostlegt hvað þessari persónu dettur í hug. Í Þórlákshöfn rúntuðum við Katrín og Óli lítinn hring um þennan fiskibæ og var sá hringur allveg nóg til að fara í gegnum allan bæjin, lítið grei. Matur var keyptur á bensínstöð en hann fær nú ekki margar stjörnur hjá mér vegna þess að hann var einn sá versti sem ég hef smakkað ;)

Herjólfur lagði af stað 20:30 og krakkarnir fóru að hlaupa um og tryllast af spenningi. Ég ákvað að leggjast bara á gólfið undir borðin og hvíla mig aðeins, Katrín ákvað að fylgja með. Við lágum þarna í svona hálftíma hlustandi á ipod. Þegar við settumst upp voru allir krakkarnir gjörsamlega stylltir enda um 80% af þeim bullandi sjóveik.

Eftir miklar ælur ;) og huggulegheit vorum við komin til eyja þar sem við komum okkur fyrir, fengum smá að borða og skelltum okkur svo í að svæfa krakkana. Við Ds-trail og og fleiri eldri fengum sér skála 10 min frá vestmannaeyjabænum sem var allveg magnað huggulegt og æðislegt, barasta lúxus skáli :D vantaði bara heitann pott.

Laugardagsmorgun vorum við rifin upp úr pokunum við mismiklar undirtektir og skipað að klæða okkur og koma okkur út í einhvern bíl. Við keyrðum að skátaheimilið þar sem maturinn og litlu krakkarnir voru, fengum okkur í svanginn, töluðum um póstinn og fórum svo hver í sína átt. Ég, Katrín og Ásta vorum þrjár í Náttúrugripasafnið þar sem við áttum bara að labba um og spjalla við krakkana. Dagný var ein eftir með einn útlending, einn adda og marga krakka að labba um eyjuna og skoða uppgröft. Um hádegið var samt skipt .. ég, Katrín, Ásta og Dagný fengum að vera allar saman með einn bíl hjá uppgreftinum og Addi og útilendingurinn voru á safninu.
Þetta tókst vel og vorum við allveg magnaðar:
• Ég og Dagný náðum að rifja upp jarðfræðina á fullu! Hlupum um með krakkana þreytta á eftir okkur, vorum gjörsamlega að gera góða hluti ;)
• Við brutumst allar inn í skalann okkar því við héldum að hann væri læstur og við sáum opnann glugga. Komumst svo að því að hann var opinn
• Rúntuðum um Vestmannaeyjabæ eins og brjálæðingar... 2 umferðaljós og 3 hringtorg
• Fórum í sprangið og meiddumst ekkert

Eftir póstaleikinn var bara matur og smá hvíld. Þegar hvíldin var búin rákum við krakkana út og löbbuðum við Katrín, Tóti, Beggi og f...re.. y.r? útilendingurinn af stað með krakkana að skálanum okkar. Þar biðu okkur hamborgarar og fallegt sólarsetur. Krakkarnir fengu að labba heim en við Trail fengum far. Þegar klukkan var orðin um 12 fórum við trail í smá dagskrá.. því miður varð hún ekki eins og átti að vera en hún var nú samt fín. Fengum að síga úr suuubbbuuulega háan klett í myrkur .. úúúú og spranga. Árni Johnsen átti að koma í til okkar og spila, hann komst ekki en sagði í símanum að við áttum þetta inni. Fórum bara í staðin nokkur í sturtu og töluðum saman til svona 4-5 og fórum svo að sofa.

Klukkan 7:40 vaknaði ég og gat ómögulega sofnað aftur. Allir voru seinrótaðir og ekkert að gera. Ég lærði eitthvað smáveigis en ákvað frekar að fara út í göngu. Það var æðislegt, allveg logn, sólin að koma bara magnað hlýtt og notalegt. Gangan mín endaði um 2 tímum seinna við það að ég hitti Gumma súkku sem var að fara upp í skátaheimili að gera morgunmat fyrir krakkana. Þar sem engin þreyta var að angra mig stökk ég upp í bílinn og brunaði með.
Þetta gekk allt vel og komumst við harpa að því að skinka er svakalega góð við hausverk..bara skella henni á ennið og mmmmhhh.
Sunnudagurinn var annars bara rólegur, ein ganga upp á eldfell sem ég tók ekki þátt í. Fór frekar að keyra þangað á fallega bílnum hans Gumma með óla. Svo var bara tekið til á meðan krakkarnir og sumir fóru í sund.

Heimferðin gekk miklu betur og var held ég bara einn sjóveikur (ældi samt ekki). Ég svaf svona 85% af ferðina nema þegar ég fór í matsalinn að fá Begga til að kaupa mat fyrir mig og Katrínu. Hann hélt að ég og Katrín myndum ekki þora að sleikja kaðal og manaði okkur til þess, bauð okkur svo 1000kr fyrir það og voilah.. 1000kr í vasann.


Jæja þetta var skemmtilegt en ég var óbboslega þreytt! Var örruglega öööömurleg á miami fundinum þar sem ég fattaði varla hvað ég var að segja. En ég hlakka til miami :D:D:D ÞAÐ VERÐUR MAGNAÐ!!!

Kveðja elna tevuskáti ... fótboltalúði .. alles gút

föstudagur, mars 24, 2006

Indverskt biturt framfarablogg

Fyrsta lagi bitur útaf því að blogger.com er of busy fyrir bloggið mitt

jæja eins gott að þetta gerist ekki aftur
..Loksins drullaðist ég til að henda myndunum inn á veraldarvefinn. Ég held að þetta fari að koma inn á hverri stundu, örruglega komið inn þegar einhver les þetta blogg. Það er allveg óendanlega leiðinlegt hvað það tekur langan tíma fyrir myndirnar að komast inn á netið. Síðan er www.elna.shutterfly.com en ég vara við illa tektum myndum og frekar ófríðum.

"ADDING PICTURES
Your pictures are currently being transferred to Shutterfly
This window will automatically close when it is complete."


Þessi gluggi er búinn að vera opinn síðustu tvær klukkustundirnar..!

Síðustu dagar hafa verið undarlegir. Ég hef ekki náð að fatta allt sem er að gerast hjá mér, þvílík biturð og depurð sem ríkir hjá mér. Reyndar hefur það verið ágætt í dag, ætli þetta sé ekki bara álagið frá skólanum? Fékk einmitt 8 í jarðfræði og hef verið allveg skuggalega jolly út af því.

Úff svo held ég að ég þurfi að fara að skoða eyrun mín! Mörg dæmi um að ég er ekkert að heyra hvað fólk segir...!
Á einni æfingu eftir útilegu:
Björg: Elna? Nennir þú að loka hurðina?
Sú heyrnalausa: Já veistu það var fínt, svolítið kallt en allveg hugguleg stemmning og svona...
Allar stelpurnar horfðu á mig eins og ég væri fífl. Ég hélt að hún hefði sagt hvernig var um helgina


Ég giska að ég sé bara eitthvað utan við mig, það vantar eitthvað í mig... Allt kemur svo öfugt út úr mér t.d. þegar ég tala og er þreytt jafnvel bara dofin, þá gleymi ég svona 30% af orðunum sem ég ætla að segja og hugsa þau í staðin og þetta kemur bara út í köku.. skuggalegt

Fólk skilur mig ekki

Ég skil mig ekki


... HEY testið ett.. segið "WINNIE THE POOH" á ensku með indverskum hreim .. það kemur út eins og "we need to poo" Ógeðslega töff, hef hlegið mikið af þessu í dag. Fyrst í efnafræði og ensku með Röggu svo líka í strætó með Kristinu. Ég held að við höfum glatt marga þreytta námsmenn í þessari ferð

Ég held að myndirnar séu komnar á netið .. ef þið lásuð ekki þetta blogg þá verðið þið að lesa það því slóðin er einhverstaðar inn í því .. durrummdumm

Well .. thank you and come again .. *Indverskur hreimur*

fimmtudagur, mars 23, 2006

The Secret...

Ég er að borða KitKat og það stendur THE SECRET á því :D

Annars, er einhver til í að kenna mér Boolean algebru fyrir morgundaginn?

fimmtudagur, mars 16, 2006

Grímuballið

Myndavélin er heima .. svo engar myndir við þessu bloggi.
Mig langaði bara að tjá mig um það að ég er bitur. Eina manneskjan í bekknum sem er tíma klukkan 9:20 og svo er bara eyða.. hefði ekki verið þessi tími væri ég sofandi núna!
Ballið í gær var fínasta skemmtun! Leiðindi að ég er ekki með myndir.
Ég og Kristín vorum cowboygirls... hljómar betur en cowgirls (beljustelpur). Allveg magnað!..

Ég er með gott boð! Er einhver sem vill skrifa ritgerð um Queen, fyrirlestur um queen og ritgerð um Reggae? Þarf bara að vera 250 orða rigerð og fyrirlesturinn í 10-15 min .. nei? enginn?? KRÆST þið eruð stundum allveg pain in the ass..

Þá geri ég þetta bara sjálf... ADIOS!

GEÐVEIKT COOL! maður getur bara sett mmyndir beint af tölvuna inn á bloggið .. ógó töff